HamranesHringhamar 43, Hafnarfirði

Nýtt hjúkrunarheimili í Hamranesi

Hringhamar 43, Hafnarfirði
99 hjúkrunarrými tilbúin eftir 158 daga
Áætluð verklok 1. mars 2027
Nánar ↓
  • 99hjúkrunarrými
  • 28 m²nettó einkarými íbúa
  • 6.899 m²brúttó, fimm hæðir
  • 111húseiningar úr stáli
  • 9heimiliseiningar
    11 íbúar í hverri
  • 83bílastæði á lóð
Hjúkrunarrýmin

Hjúkrunarrýmin koma öll fullbúin til landsins

Öll 99 rýmin eru eins, 28 m² nettó. Hvert rými er einbýli með stofu og svefnaðstöðu, rúmgóðu baðherbergi, fataskáp og lítilli eldhúsinnréttingu með vaski og skápum.

Rýmin eru framleidd í verksmiðju Volumetric Building Companies (VBC) í Póllandi og koma til landsins í heilum einingum, tvö rými með baðherbergjum og gangur á milli. Gólfefni, baðherbergi, eldhúsinnrétting, fataskápur, braut fyrir loftlyftu, loft og lýsing eru frágengin í verksmiðjunni. Á staðnum eru einingarnar tengdar saman og sameiginleg rými hjúkrunarheimilisins fullfrágengin. Myndirnar eru af fullbúnu rými eins og það kemur úr verksmiðjunni.

  • Tveir gluggar í hverju rýmiStórir gluggar tryggja góða birtu og útsýni, og annar glugginn er opnanlegur.
  • Rúmgott baðherbergiSturta, hæðarstillanleg handlaug og salerni og gott pláss fyrir starfsfólk.
  • Loftlyfta í öllum rýmumBraut er í lofti frá rúmi inn á baðherbergi.
Anddyri og eldhúseining í hjúkrunarrými
Anddyri, fataskápur og eldhúsinnrétting.
Eldhúseining með vaski
Eldhúsinnrétting.
Rennihurð inn á baðherbergi
Rennihurð inn á baðherbergi.
Setu- og svefnrými með tveimur gluggum
Stofa og svefnrými.
Hjúkrunarheimilið séð frá garðhlið
Garðhliðin, vestan við húsið, með verönd og útisvæði. Tölvuteikning ARKÍS.

Húsið

Húsið skiptist í níu heimiliseiningar með 11 íbúum í hverri. Í hverri einingu er rúmgóð setustofa og borðstofa með eldhúsi og vinnueyju þar sem starfsfólk hefur góða yfirsýn. Á hverri hæð eru svalir sem tvær einingar deila og vestan við húsið er garður sem sést frá öllum deildum.

Á jarðhæð er bjart anddyri, fjölnotasalur, sjúkraþjálfun með aðgengi út í garðinn, hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa. Í norðurálmu jarðhæðar eru 11 rými í sérstakri einingu fyrir íbúa sem þurfa rólegra og afmarkað umhverfi, með aðgengi að garði.

Húsið er hannað frá grunni sem hjúkrunarheimili eftir viðmiðum ríkisins. Sóltún heilbrigðisþjónusta lagði hönnuðum til reynslu sína af rekstri hjúkrunarheimila. Skipulagið gefur starfsfólki góða yfirsýn og skapar réttar vinnuaðstæður og flæði sem henta vel daglegum rekstri.

Hjúkrunarheimilið séð frá aðkomu og bílastæðum
Aðkoman frá Hringhamri. Tölvuteikning ARKÍS.
Gestir skoða fullbúið sýningarrými
Sýningarrými skoðað í verksmiðjunni.
Loftmynd af Hamraneshverfi og byggingarlóð
Lóðin í Hamraneshverfi. Grunnskóli hverfisins verður hinum megin við götuna.

Aðstaða starfsfólks

  • BúningsklefarBúningsklefar með sturtum og skápum á jarðhæð. Sérinngangur starfsfólks er sunnan við húsið í beinum tengslum við búningsaðstöðu.
  • Skrifstofur og fundarherbergiÁ jarðhæð og á hverri hæð, ásamt lyfjaherbergi og viðtalsherbergi fyrir aðstandendur.
  • HvíldaraðstaðaÁ öllum hæðum.
  • Tvær lyfturRúmgóðar þannig að sjúkrarúm komist fyrir í þeim.

Öryggi og umhverfi

  • BrunavarnirVatnsúðakerfi í öllu húsinu og brunaviðvörun tengd vaktstöð auk þriggja stigahúsa. Húsið er hólfað þannig að íbúar eru færðir milli hólfa á sömu hæð í stað þess að þurfa að fara út.
  • UmhverfisvottunStefnt er að BREEAM-vottun („Very Good“). Allt byggingarefni er CE-vottað.
  • HljóðvistUppfyllir flokk C skv. ÍST 45 í öllu húsinu og strangari kröfur (flokk B) í fundarherbergjum, skrifstofum og á hjúkrunarvakt.
  • AðgangsstýringÚtgangar af deildum opnast með tveimur hnöppum, til öryggis fyrir íbúa með heilabilun.
Byggingaraðferðin

Hjúkrunarheimilið er að mestu smíðað í verksmiðju og svo sett saman á lóðinni

Húsið er byggt úr 111 húseiningum úr stáli sem eru framleiddar í verksmiðju Volumetric Building Companies (VBC) í Póllandi á sama tíma og jarðvinna og grunnur eru unnin í Hamranesi. Einingarnar koma með tveimur skipum til Hafnarfjarðar, eru hífðar á sinn stað og boltaðar saman.

Þannig er hægt að vinna marga verkþætti samtímis og stytta byggingartímann verulega. Aðferðin er ný við byggingu hjúkrunarheimila hér á landi en hefur verið notuð erlendis um áratugaskeið. Kröfur um efni, frágang og öryggi eru þær sömu og í hefðbundinni byggingu, þar með talið vegna vinds og jarðskjálfta.

Á leiðinni til Íslands eru einingarnar klæddar til varnar og líkjast gámum, en inni í þeim eru fullbúin hjúkrunarrými. Húsið er einangrað að utan á staðnum og klætt álklæðningu í samræmi við teikningar.

Framleiðslan í verksmiðjunni

Stálrammi húseiningar í verksmiðju
Stálrammi tilbúinn til klæðningar.
Tveir starfsmenn leggja gólfplötur í húseiningu
Unnið við ísetningu á gólfplötum.
Starfsmaður skrúfar veggeiningu fasta
Uppsetning veggeininga.
Starfsmaður setur upp lagnir brunakerfis í lofti
Uppsetning brunakerfis.
Raflagnir dregnar í veggi húseiningar
Raflagnavinna í gangi.
Veggir spartlaðir í húseiningu
Frágangur veggja í húseiningu.
Hópur skoðar byggingarefni í verksmiðjunni
Gæðaúttekt í verksmiðju.
Hópur skoðar húseiningu í smíðum
Gæðaúttekt í verksmiðju.
Húseining með glugga og steinullareinangrun
Húseining með ísettum glugga og einangrun.
Fullbúin eining í verksmiðju VBC í Póllandi
Eining í verksmiðju VBC í Póllandi, innréttuð áður en hún fer í skip.
Húseining klædd hlífðardúk
Húseining tilbúin til flutnings með hlífðarlagi.
Lyftari flytur húseiningu á flutningabíl
Tilbúin húseining flutt úr verksmiðju.
Staða framkvæmda

Húsið er fullreist og lokafrágangur tekinn við

Allar 111 húseiningarnar eru komnar á sinn stað við Hringhamar 43. Nú tekur lokafrágangur við inni og úti, með áætluðum verklokum 1. mars 2027.

  • Hamranes í tölum
  • 99hjúkrunarrými
  • 6.899 m²á fimm hæðum
  • 111húseiningar
  • 1. mars 2027áætluð afhending

Framvinda

Staða í nóvember 2026
  1. JarðvinnaLokið
  2. SökklarLokið sumarið 2026
  3. EiningarKomnar til landsins
  4. UppsetningLokið í nóvember 2026
  5. FrágangurÍ vinnslu
  6. AfhendingÁætluð 1. mars 2027
Hjúkrunarheimilið fullreist með vinnupöllum, séð úr lofti í ljósaskiptum
Uppsetningu húseininga lokið. Unnið við einangrun.
Loftmynd beint ofan á steypta botnplötu hússins
Botnplatan steypt og bíður húseininga.
Flutningaskip með húseiningar við bryggju í Hafnarfirði
Uppskipun í Hafnarfjarðarhöfn.
Fyrstu einingar hífðar á botnplötuna
Fyrstu einingarnar hífðar á botnplötuna.
Krani hífir einingu á sinn stað, september 2026
Uppsetning eininga á lóðinni, september 2026.
Krani við húsið þegar báðar álmur eru að rísa
Unnið við uppsetningu húseininga.
Loftmynd af krana og húseiningu á flutningabíl við húsið
Unnið við uppsetningu húseininga.
Loftmynd yfir Hamraneshverfi með bygginguna í smíðum
Hamraneshverfi, september 2026.
Loftmynd beint ofan á þak hússins eftir að allar einingar eru komnar á sinn stað
Uppsetningu húseininga lokið, horft ofan á þakið.

Uppsetning húseininganna á 30 sekúndum

Fréttir

Fréttir af verkefninu

Nóvember 2026

Húsið fullreist

Allar byggingareiningar eru komnar á sinn stað við Hringhamar 43 og húsið er fullreist. Nú tekur lokafrágangur við inni og úti, með áætluðum verklokum 1. mars 2027.

Húsið fullreist, séð úr lofti
Október 2026

Tilboð Hamraness valið í markaðskönnun FSRE

FSRE hefur tilkynnt Hjúkrunarheimilinu Hamranesi að tilboðið um hjúkrunarheimili við Hringhamar 43 hafi verið valið í markaðskönnun um hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu. Endanleg samningsgerð er háð því að samkomulag náist við FSRE um skilmála leigusamnings.

Tölvuteikning af hjúkrunarheimilinu séð frá garðhlið
September–október 2026

Einingarnar koma til landsins

Fyrri sending byggingareininga kom til landsins í september og síðari í október. Einingunum, 111 talsins, er ekið í lögreglufylgd frá Hafnarfjarðarhöfn og þær hífðar á sinn stað og boltaðar saman.

Flutningaskip með húseiningar í Hafnarfjarðarhöfn
Vor og sumar 2026

Sökklar og botnplata steypt

Sökklar og botnplata hjúkrunarheimilisins voru steypt á vor- og sumarmánuðum. Einingaframleiðsla í Póllandi fer fram á sama tíma, sem styttir byggingartímann.

Steypt botnplata hússins séð úr lofti
Febrúar 2026

Jarðvinna hefst

Jarðvinna hefst á lóðinni við Hringhamar 43 í Hamraneshverfi í Hafnarfirði.

Um verkefnið

Hverjir standa að Hamranesi

Hjúkrunarheimilið Hamranesi ehf. á og byggir húsið að Hringhamri 43. Félagið er í eigu Stafa – hjúkrunarheimilis hf.

Verkefnið hefur verið í undirbúningi frá 2023 þegar Hafnarfjarðarbær auglýsti lóðina. Húsið var hannað af ARKÍS arkitektum ásamt verkfræðistofum og öðrum hönnuðum sem taldir eru upp hér að neðan. Sóltún heilbrigðisþjónusta, sem rekur Sóltún í Reykjavík og Sóltún við Sólvang í Hafnarfirði, sat í rýnihópi með hönnuðum og verkefnastjórum og lagði til reynslu sína af rekstri, svo að skipulag og efnisval tækju mið af daglegum rekstri hjúkrunarheimilis.

Eigendur

Stafir – hjúkrunarheimili hf. eru í eigu fagfjárfesta. Meðal eigenda eru Íslensk fjárfesting, Sjóvá, Birta lífeyrissjóður, Fossar fjárfestingarbanki og Lífeyrissjóður Vestmannaeyja.

Stjórn Hjúkrunarheimilisins Hamranesi ehf.

  • Hjörleifur Jakobssonformaður
  • Sigríður Berglind Ásgeirsdóttir
  • Frosti Bergsson
  • Björn Þór Karlsson
  • Sveinn Björnssonframkvæmdastjóri

Hönnuðir

  • ARKÍS arkitektaraðalhönnuður
  • HANNA verkfræðistofaburðarþol
  • TEKNIK verkfræðistofalagnir og loftræsing
  • Verkhönnunraflagnir
  • ÖRUGG verkfræðistofabrunahönnun
  • Myrra hljóðstofahljóðvist
  • Landslaglandslagshönnun

Samstarfsaðilar

  • Íslenskar fasteignirframkvæmdir og byggingarstjórn
  • Stafir ehf.rekstur fasteignar og viðhald
  • Sóltún heilbrigðisþjónustaráðgjöf um þarfir rekstrar
  • Volumetric Building Companieshönnun, framleiðsla og uppsetning eininga