Nýtt hjúkrunarheimili í Hamranesi
- 99hjúkrunarrými
- 28 m²nettó einkarými íbúa
- 6.899 m²brúttó, fimm hæðir
- 111húseiningar úr stáli
- 9heimiliseiningar
11 íbúar í hverri - 83bílastæði á lóð
Hjúkrunarrýmin koma öll fullbúin til landsins
Öll 99 rýmin eru eins, 28 m² nettó. Hvert rými er einbýli með stofu og svefnaðstöðu, rúmgóðu baðherbergi, fataskáp og lítilli eldhúsinnréttingu með vaski og skápum.
Rýmin eru framleidd í verksmiðju Volumetric Building Companies (VBC) í Póllandi og koma til landsins í heilum einingum, tvö rými með baðherbergjum og gangur á milli. Gólfefni, baðherbergi, eldhúsinnrétting, fataskápur, braut fyrir loftlyftu, loft og lýsing eru frágengin í verksmiðjunni. Á staðnum eru einingarnar tengdar saman og sameiginleg rými hjúkrunarheimilisins fullfrágengin. Myndirnar eru af fullbúnu rými eins og það kemur úr verksmiðjunni.
- Tveir gluggar í hverju rýmiAnnar glugginn er opnanlegur.
- Rúmgott baðherbergiSturta, hæðarstillanleg handlaug og salerni og gott pláss fyrir starfsfólk.
- Loftlyfta í öllum rýmumBraut er í lofti frá rúmi inn á baðherbergi.
- KallkerfiKallhnappar og snertiskjár eru í hverju rými auk neyðarsnúru á baðherbergi. Boð berast beint í síma starfsfólks.
Húsið
Húsið skiptist í níu heimiliseiningar með 11 íbúum í hverri. Í hverri einingu er rúmgóð setustofa og borðstofa með eldhúsi og vinnueyju þar sem starfsfólk hefur góða yfirsýn. Á hverri hæð eru svalir sem tvær einingar deila og vestan við húsið er garður sem sést frá öllum deildum.
Á jarðhæð er bjart anddyri, fjölnotasalur, sjúkraþjálfun með aðgengi út í garðinn, hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa. Í norðurálmu jarðhæðar eru 11 rými í sérstakri einingu fyrir íbúa sem þurfa rólegra og afmarkað umhverfi, með aðgengi að garði.
Húsið er hannað frá grunni sem hjúkrunarheimili eftir viðmiðum ríkisins. Sóltún heilbrigðisþjónusta lagði hönnuðum til reynslu sína af rekstri hjúkrunarheimila. Skipulagið gefur starfsfólki góða yfirsýn og skapar réttar vinnuaðstæður og flæði sem henta vel daglegum rekstri.
Aðstaða starfsfólks
- BúningsklefarBúningsklefar með sturtum og skápum á jarðhæð. Sérinngangur starfsfólks er sunnan við húsið í beinum tengslum við búningsaðstöðu.
- Skrifstofur og fundarherbergiÁ jarðhæð og á hverri hæð, ásamt lyfjaherbergi og viðtalsherbergi fyrir aðstandendur.
- HvíldaraðstaðaÁ öllum hæðum.
- Tvær lyfturRúmgóðar þannig að sjúkrarúm komist fyrir í þeim.
Öryggi og umhverfi
- BrunavarnirVatnsúðakerfi í öllu húsinu og brunaviðvörun tengd vaktstöð auk þriggja stigahúsa. Húsið er hólfað þannig að íbúar eru færðir milli hólfa á sömu hæð í stað þess að þurfa að fara út.
- UmhverfisvottunStefnt er að BREEAM-vottun („Very Good“). Allt byggingarefni er CE-vottað.
- HljóðvistUppfyllir flokk C skv. ÍST 45 í öllu húsinu og strangari kröfur (flokk B) í fundarherbergjum, skrifstofum og á hjúkrunarvakt.
- AðgangsstýringÚtgangar af deildum opnast með tveimur hnöppum, til öryggis fyrir íbúa með heilabilun.
Hjúkrunarheimilið er að mestu smíðað í verksmiðju og svo sett saman á lóðinni
Húsið er byggt úr 111 húseiningum úr stáli sem eru framleiddar í verksmiðju Volumetric Building Companies (VBC) í Póllandi á sama tíma og jarðvinna og grunnur eru unnin í Hamranesi. Einingarnar koma með tveimur skipum til Hafnarfjarðar, eru hífðar á sinn stað og boltaðar saman.
Þannig er hægt að vinna marga verkþætti samtímis og stytta byggingartímann verulega. Framkvæmdir á lóðinni hafa staðið í um sex mánuði og húsið á að verða tilbúið eftir um sex mánuði til viðbótar. Aðferðin er ný við byggingu hjúkrunarheimila hér á landi en hefur verið notuð erlendis um áratugaskeið. Kröfur um efni, frágang og öryggi eru þær sömu og í hefðbundinni byggingu, þar með talið vegna vinds og jarðskjálfta.
Á leiðinni til Íslands eru einingarnar klæddar til varnar og líkjast gámum, en inni í þeim eru fullbúin hjúkrunarrými. Húsið verður svo einangrað að utan og klætt álklæðningu eins og teikningarnar sýna.
- 2023Hafnarfjarðarbær auglýsti lóðina við Hringhamar 43 fyrir hjúkrunarheimili.
- Sumar 2024Samið við VBC eftir samanburð á framleiðendum.
- Febrúar 2026Jarðvinna hófst. Sökklar og botnplata var steypt vorið og sumarið 2026.
- September 2026Fyrri sending eininga kom til landsins og fyrri helmingur hússins er að rísa.
- Október–nóvember 2026Seinni sending kemur í október og húsið verður fullreist í byrjun nóvember. Þá tekur lokafrágangur við.
- 1. mars 2027Áætluð verklok.
Hverjir standa að Hamranesi
Hjúkrunarheimilið Hamranesi ehf. á og byggir húsið að Hringhamri 43. Félagið er í eigu Stafa – hjúkrunarheimilis hf.
Verkefnið hefur verið í undirbúningi frá 2023 þegar Hafnarfjarðarbær auglýsti lóðina. Húsið var hannað af ARKÍS arkitektum ásamt verkfræðistofum og öðrum hönnuðum sem taldir eru upp hér að neðan. Sóltún heilbrigðisþjónusta, sem rekur Sóltún í Reykjavík og Sóltún við Sólvang í Hafnarfirði, sat í rýnihópi með hönnuðum og verkefnastjórum og lagði til reynslu sína af rekstri, svo að skipulag og efnisval tækju mið af daglegum rekstri hjúkrunarheimilis.
Eigendur
Stafir – hjúkrunarheimili hf. eru í eigu fagfjárfesta. Meðal eigenda eru Íslensk fjárfesting, Sjóvá, Birta lífeyrissjóður, Fossar fjárfestingarbanki og Lífeyrissjóður Vestmannaeyja.
Stjórn Hjúkrunarheimilisins Hamranesi ehf.
- Hjörleifur Jakobssonformaður
- Sigríður Berglind Ásgeirsdóttir
- Frosti Bergsson
- Björn Þór Karlsson
- Sveinn Björnssonframkvæmdastjóri
Hönnuðir
- ARKÍS arkitektaraðalhönnuður
- HANNA verkfræðistofaburðarþol
- TEKNIK verkfræðistofalagnir og loftræsing
- Verkhönnunraflagnir
- ÖRUGG verkfræðistofabrunahönnun
- Myrra hljóðstofahljóðvist
- Landslaglandslagshönnun
Samstarfsaðilar
- Íslenskar fasteignirframkvæmdir og byggingarstjórn
- Stafir ehf.rekstur fasteignar og viðhald
- Sóltún heilbrigðisþjónustaráðgjöf um þarfir rekstrar
- Volumetric Building Companieshönnun, framleiðsla og uppsetning eininga